Fornbíladagurinn

Fornbíladagurinn

Árbæjarsafn, Kistuhylur 4, 110 Reykjavík Kort

sun. 05.07.2026 13:00

Sunnudaginn 5. júlí kl 13-16 verður boðið upp á hina árvissu og vinsælu fornbílasýningu á Árbæjarsafni. Fornbílaklúbbur Íslands sýnir ýmsa merka bíla í eigu félagsmanna á safnsvæðinu. Félagsmenn verða á staðnum og spjalla við gesti.

Dagskráin stendur frá klukkan 13.00 – 16.00 en safnið er opið 10.00 – 17.00.
Ókeypis aðgangur fyrir börn, öryrkja og menningarkortshafa. Öll velkomin!
Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.
Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur).
Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins.
Öll bílastæði eru ókeypis.