Jazzhrekkur

Jazzhrekkur

Hannesarholt, Grundarstigur 10, 101 Reykjavík Kort

lau. 29.08.2026 13:30

Jazzhrekkur á Jazzhátíð Reykjavíkur

Laugardaginn 29. ágúst kl. 12:00 & 13:30


Nú ætlum við, Ingibjörg, Sunna og Leifur, að vera með Jazzhrekk á Jazzhátíð Reykjavíkur og við hlökkum ofboðslega mikið til! Við ætlum að spila fyrir ykkur spriklandi nýja jazztónlist undir yfirskriftinni Jazzhrekkur en lögin fjalla um fyrirbæri tengd hrekkjavöku; drauga, nornir, afturgöngur og kóngulær. Við verðum með tvenna tónleika, kl. 12:00 og 13:30 laugardaginn 29. ágúst.


Það er ókeypis aðgangur en eina sem þið þurfið að gera er að panta miða í gegnum Tix.is

.


Flytjendur

  • Jazzhátíð Reykjavíkur
    Jazzhátíð Reykjavíkur

    Jazzhátíð Reykjavíkur hefur verið haldin árlega allt frá árinu 1990 og er næst elsta tónlistarhátíð landsins. Hátíðin er vettvangur alls þess helsta sem gerist á sviði innlendrar jazztónlistar og er hápunktur jazzlífsins á Íslandi og árleg uppskeruhátíð innlendra jazztónlistarmanna.

    Meginmarkmið Jazzhátíðar Reykjavíkur er að styðja við og kynna jazztónlist og bjóða tónlistarmönnum og jazzunnendum upp á framúrskarandi vettvang og umgjörð þar sem þeir geta flutt og notið áheyrnar þess besta sem gerist í innlendri og erlendri jazztónlist. Jafnframt leggur Jazzhátíðin innlendum jazztónlistarmönnum lið með því að koma þeim á framfæri við hátíðir í öðrum löndum í gegnum samstarfsvettvang hagsmunaaðila á evrópsku jazzsenunni, European Jazz Network, en Jazzhátíð Reykjavíkur hefur verið meðlimur samtakanna undanfarin ár.

  • Ingibjörg

    Söngkona með fjölbreyttan bakgrunn í tónlist.

  • Jazzhrekkur

    Family concert featuring jazz tunes.

  • Ingibjorg

    Sound Journey Guide

  • Reykjavík Jazz Festival
    Reykjavík Jazz Festival

    25. - 30. ágúst 2026 / August 25th-30th 2026

    www.reykjavikjazz.is