Krakkajóga og myndlist

Krakkajóga og myndlist

Víkurhvarf 1, Kópavogur, Iceland, Víkurhvarf 1, 203 Kópavogsbær Kort

fös. 10.07.2026 09:00

Langar barnið þitt að skapa, hreyfa sig og finna ró í skemmtilegu og öruggu umhverfi? 💛
Börnin kynnast einföldum grunnjógastöðum sem styrkja líkama og huga. Við einblínum á jafnvægi, styrk, leik og öryggi. Hver dagur hefur sitt þema.
Börnin fá tækifæri til að tjá sig á skapandi hátt í samræmi við þema dagsins.
Hver dagur endar með stuttu slökunarferðalagi úr þema dagsins sem hjálpar börnunum að róa hugann, finna öryggi og njóta stundarinnar.
Af hverju þetta er gott fyrir barnið þitt:
Styrkir líkama, samhæfingu og jafnvægi.
Nærir sköpunargleði og hugmyndaflug.
Byggir upp sjálfstraust, jákvætt hugarfar og þakklæti.
Eykur líkamsvitund og innri ró
📍 Víkurhvarf 1, Kópavogi
👧👦 Fyrir börn 7–9 ára
👥 Aðeins 8 börn í hóp – persónuleg og hlý upplifun
⏰ Vikunámskeið kl. 9–12
Námskeiðið er einnig kynnt á síðum Kópavogsbæjar ✨
👉 Allar upplýsingar á heimasíðu
Pláss eru takmörkuð – tryggðu barninu þínu sæti 💫
Skráning gegnum artbysogna@gmail.com

Snædís hefur áralanga reynslu af vinnu með börnum, bæði í leik- og grunnskólum. Hún starfaði í rúm tíu ár sem sérkennari og liðveitandi fyrir börn með sérþarfir, bæði hjá félagsþjónustu Kópavogs og í leikskólum í Kópavogi. Hún lauk 4 tíma Skyndihjálparnámskeiði hjá Rauða Krossi Íslands í mars 2026, þar sem áhersla var á skyndihjálp barna.
Dóttir Snædísar mun starfa sem aðstoðarmaður á námskeiðunum. Hún tekur virkan þátt í daglegu starfi, aðstoðar börnin og er jákvæð fyrirmynd í hópnum. Hún lauk 4 tíma skyndihjálparnámskeiði sumarið 2025.
Námskeiðið er auglýst af Kópavogsbæ. Snædís er einnig með leyfi Heilbrigðiseftirlits fyrir námskeiðshaldi í rýminu.