TILFINNINGAVERA // Þórunn Ebba Örvarsdóttir

TILFINNINGAVERA // Þórunn Ebba Örvarsdóttir

Myndlistardeild Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegur 91, 105 Reykjavík Kort

sun 27. sep 2026 14:00

Einkasýning í Kubbnum

Opnun 24. september 17:00 – 19:00

Einnig opið 26. september kl 13-16. & 27. september kl 14-16.

Þórunn Ebba Örvarsdóttir (f. 2000) teiknar með túss á pappír, skissar hugmyndir sem hún færir síðan yfir í þrívídd. Efniviðurinn sem hún notast við er náttúrulegur, viður (stökkbreyttur fugl með fjóra vængi og tvö stél er lagður til hvíldar), leir (andlit byggt á fisheye ljósmynd öskrar úr spegilsléttum polli), stál (líkami í raunstærð plasmaskorinn og slípaður í spíral) sem hún mótar samkvæmt leiðbeiningum dulvitundarinnar, sem veit alltaf hvað hún er að gera.

Skökku línurnar meiga vera skakkar, þær eru dýrðlegar.

TILFINNINGAVERA

Að bera allar áhyggjur, vandamál og tilfinningar.

Að sætta sið við hlutina eins og þeir eru,

vita að þeir munu ekki skána og geta ekki versnað.

Að vera föst í vítahring og losna aldrei út.

Að vera aldrei tilbúin að losna.

Að vona, óska, semja og syrgja.

Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 17. september – 26. nóvember 2026. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur, Ólafar Nordal & Páls Hauks Björnssonar. Kennarar og leiðbeinendur eru Sabine Fischer, Una Björg Magnúsdóttir & Unnar Örn Jónasson Auðarsson.