Norrænir tónar

Norrænir tónar

Salurinn, Hamraborg 6, 200 Kópavogur Kort

sun. 23.08.2026 13:30

ISK 3900.00
Miðar / Skráning
ISK 3900.00
Miðar / Skráning

Finnski sellistinn Elis Hakola og píanistinn Herdís Ágústa Linnet flytja verk eftir sænsk, finnsk og íslensk tónskáld frá 20. og 21. öldinni. Þetta er hluti af norrænu verkefni þeirra en þau leika prógrammið einnig í Svíþjóð og Finnlandi.

Á tónleikunum verður Íslandsfrumflutningur á verkinu I dunklet spelar ljuset, eftir sænska tónskáldið Siri Eigard, sérstaklega tileinkað dúóinu. Annar frumflutningur verður á tveimur smáverkum eftir Elis Hakola. Verkið Dilla eftir Atla Ingólfsson, sem ekki hefur verið leikið á píanó og selló áður, er einnig á dagskrá.

Þá verður hin glæsilega og kröfuharða sónata fyrir píanó og selló, eftir finnska tónskáldið Heidi Sundblad-Halme, leikin. Það verk hefur aðeins heyrst nokkrum sinnum áður en sökum kynjaójafnréttis fékk hún aldrei verk sitt útgefið. Fjölskylda hennar hefur gefið sérstakt leyfi fyrir flutningnum. Sólóverk eftir Karólínu Eiríksdóttur og Atla Heimi Sveinsson eru einnig á dagskrá.

Elis Hakola og Herdís Ágústa Linnet hafa áður komið fram saman á ýmsum tónleikum. Þar má helst nefna tónleika þeirra í sendiherrabústað Íslands í Stokkhólmi, Hannesarholti í Reykjavík og á listahátíðinni Norpas á Kimito-eyju í skerjagarði Turku, Finnlandi. Þau eru bæði menntuð frá Konunglega tónlistarháskólanum í Stokkhólmi.

Með þessum tónleikum vilja flytjendur sérstaklega lyfta upp verkum ungra tónskálda og tengja saman Norðurlöndin á sviði menningar og tónlistar.


Prógram

Elis Hakola (f. 2000)
Kaksi kappaletta sellolle ja pianolle - Tveir kaflar fyrir selló og píanó (2026)

Heidi Sundblad-Halme (1903-1973)
Sónata fyrir selló og píanó, Op. 14/23 (1934)

Karólína Eiríksdóttir (f. 1951)
Skýin (1995)

HLÉ

Atli Heimir Sveinsson (1938 - 2019)
Þrír kaflar úr Dimmalimm (1970)
- Intermezzo: Dans árstíðanna
- Millispil I
- Söngur Dimmalimm

Atli Ingólfsson, (f. 1962)
Dilla

Siri Eigard (f. 2001)
I dunklet spelar ljuset - Ljós leikur í myrkrinu (2026)

Flytjendur

  • Elis Hakola
    Elis Hakola
    Sellisti
  • Herdís Ágústa Linnet
    Herdís Ágústa Linnet

    Herdís Ágústa Linnet hefur síðustu fimm árin stundað nám í klassískum píanóleik við Konunglega tónlistarháskólann í Stokkhólmi (Kungl. Musikhögskolan) undir handleiðslu prof. Anders Kilström og prof. Stefan Bojsten. Hún lauk bakkalárnámi sumarið 2022 og leggur nú lokahönd á meistaranám sitt sem lýkur á þessu ári, 2024. Áður en haldið var út í nám, stundaði Herdís píanónám við Tónlistarskóla Kópavogs og Tónlistarskólann í Reykjavík/Menntaskóla í tónlist, hjá Brynhildi Ásgeirsdóttur og Svönu Víkingsdóttur. Hún hefur komið fram sem píanisti með kór Konunglega tækniháskólans í Stokkhólmi, á tónleikum Kammersveitarinnar Elju í Iðnó, leikið tónlist með tríói sínu, Tríó Esja, í Dómkirkjunni, og komið fram á tónlistarhátíðinni Seiglu, sumarið 2023. Hún kom fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit unga fólksins haustið 2023 þar sem hún flutti píanókonsert Edvard Griegs. Tónsmíðar, leikhús, jazztónlist og dans eru einnig ástríða Herdísar og innblástur er sóttur frá þeim sviðum. Nokkur kórverk hafa verið flutt eftir hana í Stokkhólmi. Herdís hefur margsinnis leikið á bæði trompet og píanó/celestu með ungsveit sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hún hefur einnig kennt á trompet við Skólahljómsveit Kópavogs ásamt því að vera fyrrum meðlimur Hamrahlíðarkórsins sem sungið hefur meðal annars með Björk Guðmundsdóttur og Sinfóníuhljómsveit Íslands, undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Herdís hlaut styrk úr minningarsjóði um Birgi Einarsson apótekara til píanónáms, sumarið 2023, og frá Den Nordiska Första S:t Johannislogens Jubelfond vorið 2024, sem styrkir ungt framúrskarandi listafólk í ólíkum listgreinum.