A! - Aðalheiður S. Eysteinsdóttir - Frjó og flæði

A! - Aðalheiður S. Eysteinsdóttir - Frjó og flæði

Mjólkurbúðin, Kaupvangsstræti 12, 601 Akureyri Kort

fim 8. okt 2026 18:30

Bústaðu viðburðinn!

(English below)

„Frá huga að hönd og hönd að mynd, flæðir orka sem skilar sér í endurteknum hringlaga formum skarast og verða að einhverskonar lífrænum birtingarmyndum sjálfsins. Litur mætir lit og rammar inn hugmynd sem flæðir eins og af sjálfu sér yfir myndflöt og samtal við samhliða form. Eitt afmarkað andartak tekur sér stöðu við hlið annarra frá því í gær eða fyrradag og staðfestir þar með tilvist sína í heildinni. Flókið samspil lita og forma rennur saman við ógrynni hugsana frá apríl til október þessa árs. Hringferð, hringlaga hugsun, hringöndun, og frjó falla í jarðveg eða svífa um í þyngdarleysi hversdagsins.“

Aðalheiður S. Eysteinsdóttir fæddist á Siglufirði og nam við Myndlistaskólann á Akureyri á árunum 1989–1993. Á rúmlega 30 ára ferli hefur hún haldið yfir 200 einkasýningar í 14 löndum og verk hennar má finna í opinberum söfnum og einkasöfnum bæði hér á landi og erlendis. Hún hefur tekið virkan þátt í íslensku myndlistarlífi, meðal annars í uppbyggingu Listagilsins á Akureyri, og er einn af stofnendum Verksmiðjunnar á Hjalteyri.

Árið 2011 keypti Aðalheiður Alþýðuhúsið á Siglufirði, þar sem hún hefur vinnustofu og stendur fyrir reglulegum menningarviðburðum auk þess að reka Kompuna. Hún hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín, meðal annars menningarverðlaun DV árið 2015 og Eyrarrósina árið 2023 fyrir menningarstarfið í Alþýðuhúsinu. Aðalheiður býr og starfar í Alþýðuhusinu á Siglfirði og í Freyjulundi 60.

//

"From mind to hand, and hand to image, energy flows, taking shape in recurring circular forms that overlap and become organic manifestations of the self. Colour meets colour, framing an idea that seems to flow effortlessly across the surface, entering into dialogue with neighbouring forms. One distinct moment takes its place beside others from yesterday or the day before, affirming its existence within the whole. A complex interplay of colours and forms merges with a multitude of thoughts gathered from April to October of this year. Circular journeys, circular thoughts, circular breathing, and seeds fall to the ground or drift through the weightlessness of everyday life."

Aðalheiður S. Eysteinsdóttir was born in Siglufjörður and studied at the Akureyri School of Visual Arts from 1989 to 1993. Over a career spanning more than 30 years, Aðalheiður S. Eysteinsdóttir has presented more than 200 solo exhibitions in 14 countries, and her work can be found in public and private collections both in Iceland and abroad. Aðalheiður S. Eysteinsdóttir has played an active role in Iceland’s visual arts community, including contributing to the development of Akureyri’s Art Street (Listagilið), and is one of the founders of Verksmiðjan at Hjalteyri.

In 2011, Aðalheiður S. Eysteinsdóttir purchased Alþýðuhúsið in Siglufjörður, where she has a studio, organises regular cultural events, and runs Kompan. Her work has received various recognitions, including the DV Cultural Award in 2015 and the Eyrarrós Award in 2023 for her cultural work at Alþýðuhúsið. Aðalheiður S. Eysteinsdóttir lives and works at Alþýðuhúsið in Siglufjörður and at Freyjulundur 60.