A Country Night in Nashville
Hof Menningarhús | Hamraborg, Strandgata 12, 600 Akureyri Kort
lau 13. feb 2027 20:00
Upplifðu iðandi kántrí stemningu beint frá Nashville í
sannkallaðri veislu þar sem spiluð verða gömul og ný kántrí lög.
Ein af vinsælustu kántrísýningum Evrópu, A Country Night in Nashville, stígur
nú í fyrsta sinn á svið í Hofi eftir uppselda tónleika í Hörpu árið 2025,
viðkomu í Þýskalandi og í Royal Albert Hall í London, auk sögulegs
tónleikaferðalags um Bretland.
Sex manna hljómsveitin Dominic Halpin & The Hurricanes færir kántrí
stemninguna frá Nashville, höfuðborg kántrítónlistar í Bandaríkjunum, beint upp
á sviðið í Hörpu. Flutt verða lög frá stærstu stjörnum kántrí heimsins,
fortíðar og nútíðar eins og Dolly Parton, Johnny Cash, Shania Twain, Willie
Nelson, Lady A, George Strait, Ella Langley og mörgum fleirum.
Með sönnum kántríhljómi mun sveitin spila af mikilli færni og ástríðu slagara á
borð við Ring of Fire, Crazy, 9 to 5 og The Gambler, í bland við nýrri smelli
eins og Man! I Feel Like a Woman, Need You Now og Choosin’ Texas.
Tveir tímar af stærstu kántrísmellunum og hljómsveit sem býður upp á mikið
stuð.
Klassískt kántrí. Nýtt kántrí. Frábært kántrí.
Miðbær Nashville beint á sviðið í Hof!