A! Gjörningahátíð
Útsýnisstaður við Eyrarlandsveg, Heiðarlundur 8A, 600 Akureyri Kort
lau 10. okt 2026 00:00
Bústaðu viðburðinn!A! Gjörningahátíð
A! Gjörningahátíð fer fram á Akureyri 8.-10. október næstkomandi. A! er fjögurra daga alþjóðleg gjörningahátíð sem haldin er árlega, nú í tólfta sinn, og er ókeypis inn á alla viðburði.
Hátíðin breytir Akureyri árlega í suðupott spennandi listviðburða og er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Leikfélags Akureyrar, Menningarhússins Hofs, Gilfélagsins, Myndlistarfélagsins á Akureyri og Listnámsbrautar VMA.
Fjölbreyttir gjörningar og leikhústengd verk af öllum toga eru á dagskránni. Þátttakendur eru ungir og upprennandi listamenn, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum, dans- og leikhúsfólki.
Verkefnisstjóri: Sara Bjarnason
Hér getur þú kynnt þér dagskrá hátíðarinnar nánar.