A! - Lísandra Týra Jónsdóttir - The Urinal (Þvagskálin)
Mjólkurbúðin, Kaupvangsstræti 12, 601 Akureyri Kort
lau 10. okt 2026 13:00
Bústaðu viðburðinn!THE URINAL er langvarandi gjörningur sem á í beinu samtali við Fountain eftir Marcel Duchamp.
Í 6–7 klukkustundir á dag situr listakonan á salerni sem komið hefur verið fyrir á 115 cm háum stöpli. Í kringum hana standa vatnsflöskur úr gleri. Hún drekkur vatnið og pissar og smám saman myndast sýnilegur veggur úr þvagi framan á stöplinum.
Með því að færa hinn tilbúna listmun, readymade, aftur til síns upphaflega hlutverks gefur THE URINAL hugmynd Duchamps um gosbrunninn nýtt líf. Salernið verður að lifandi gosbrunni og líkamlegt ferli er hafið upp í samhengi listarinnar.
Um leið snýr verkið við kunnuglegum birtingarmyndum kvenna og vatns í listasögunni. Í stað þess að kvenlíkaminn birtist sem skraut, kynferðisgert viðfang eða tákn við lind, brunn eða gosbrunn, verður hann hér sjálfur að uppsprettunni.
Með því að færa hversdagslega og mjög persónulega athöfn inn í almannarýmið veltir gjörningurinn upp mörkunum milli einkalífs og hins opinbera. Í heimi sem mótast sífellt meira af samfélagsmiðlum og eftirlitskapítalisma verða hegðun okkar, athygli og persónulegar venjur í auknum mæli að einhverju sem hægt er að fylgjast með, hagnýta og neyta.
Lífið sem vara. Lífið sem tilbúinn „hlutur“, ætlaður til neyslu.