A! - Ráðhildur Ólafsdóttir - Ástin og leyndardómar steinasafnarans

A! - Ráðhildur Ólafsdóttir - Ástin og leyndardómar steinasafnarans

Gilfélagið / Deiglan, Kaupvangsstræti 23, 600 Akureyri Kort

lau 10. okt 2026 21:00

Bústaðu viðburðinn!

Í marglitum plastfötum geymir steinasafnarinn safn sitt. Á steinana hafa verið skráðar ástarjátningar og leyndarmál sem hann handfjatlar, flokkar og raðar af natni og forvitni barnsins.

Smám saman mynda steinarnir slóð frá fötum bernskunnar að áhorfendum, þar sem þeir ganga á milli handa sem gjafir, játningar og brot úr persónulegum hugarheimi.

Líkt og steinarnir sem vísa veginn í ævintýrinu um Hans og Grétu verður safnið að leið milli bernsku og fullorðinsára, hins persónulega og sameiginlega. Það sem eitt sinn var tínt upp, geymt og falið er nú látið af hendi, einn steinn, ein játning, eitt leyndarmál í senn.