A! - Victoria Björk - Perform Your Attention
Gilfélagið / Deiglan, Kaupvangsstræti 23, 600 Akureyri Kort
fim 8. okt 2026 20:00
Bústaðu viðburðinn!Perform Your Attention er gjörningur þar sem athygli, sem virkt og mótandi afl í sameiginlegu rými flytjanda og áhorfenda er rannsakað. Verkið hliðrar mörkum undirbúnings og gjörnings, þar sem hversdagslegar athafnir verða hluti af verkinu sjálfu.
Flytjandi umbreytir rýminu smám saman; hún færir húsgögn og hluti, hreinsar til, sýður vatn og útbýr kaffi sem hún býður þátttakendum. Hún vinnur áfram með rýmið með því að merkja svæði á gólfi, úða vatni í loftið, kveikja á reykelsi og breyta lýsingu, hita og loftflæði. Með þessum einföldu inngripum tekur rýmið stöðugum breytingum án þess að festa sig í endanlegu formi.
Leiðsagnarkenndur texti fléttast inn í athafnirnar og býður þátttakendum að beina athygli bæði inn á við og að umhverfi sínu. Úr verður tímabundið ástand þar sem mörk efnis, skynjunar og ímyndunar verða óljós og athygli tekur á sig form í sameiginlegri upplifun viðstaddra.
Í lokin er rýmið tekið saman og fært aftur í fyrra horf með þátttöku allra. Þannig leysist verkið upp aftur í hversdagsleikann sem það spratt úr.