Námskeið í heilunarhugleiðslu að hætti Bjargar Einars
Systrasamlagið, Óðinsgata 1, 101 Reykjavík Kort
fim 1. okt 2026 18:00
Fimmtudaginn 1. október 2026, ætlum við hjá Systrasamlaginu að bjóða uppá námskeið í heilunarhugleiðslu. Námskeiðið byggir á bók Bjargar Einarsdóttur; Speglun Stjarnanna í sálinni.
Þetta 7 vikna námskeið og fer fram sjö fimmtudaga í röð.
Námskeiðið hefst 1. október 2026 og verður sjö fimmtudaga í röð frá 18:00 til 19:30 (og endar því 12. nóvember)
Við hugleiðum í Systrasamlaginu á ÓÐINSGÖTU 1.
Hugleiðslurnar styrkja og heila okkar innri tengingar þ.e. tengingarnar milli líkama, tilfinninga, huga, sálar og kjarna. Þær hjálpa okkur líka til þess að mynda nýjar tengingar. Þessar hugleiðslur tala til sálarinnar í fallegum ævintýrum þar sem merking orða og myndlíkinga leiða til heilunar. Klínísk dáleiðsla, andleg nálgun við dáleiðslu, heilun með orðum, myndlíkingar, endurheimt sálarbrota (soul retrieval), fyrrilífs heilun, og dulspekilegt táknmál sálarinnar, er meðal þess sem lagt er til grundvallar í þessum hugleiðslum.
Látum Björgu hafa orðið:
„Hjördís Þóra Jónsdóttir leiðir hópinn og með henni verða sterkar en um leið ljúfar konur sem halda utan um hópinn með henni. Þær hafa allar víðtæka reynslu í andlegum málum og hafa stundað hugleiðslur til fjölda ára ásamt jóga, qigong, verið í bæna og þróunarhringjum en einnig leiðbeint og kennt. Þær hafa allar sótt mörg hugleiðslunámskeið hjá mér og stundum aðstoðað við námskeiðin. “
Hjördís hefur starfað með Björgu í 30 ár og hefur sama bakgrunn og hún. Þær unnu líka saman og kenndu nokkur nudd- og heilunarnámskeið en einnig hefur Hjördís aðstoðað við mörg hugleiðslunámskeiða Bjargar .
TAKMÖRKUÐ PLÁSS.
Frekari upplýsingar hér:
https://systrasamlagid.is/vefverslun/namskeid-vidburdir/kaerkomid-hugleidslunamskeid-eftir-leidbeiningum-bjargar-einarsdottur-hefst-9-oktober/