Bríet - Sveitatónleikar að Ásbrekku
Ásbrekka, 804 Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Ísland, Kort
fös. 17.07.2026 20:00
Skærustu stjörnu poppheima landsins undanfarin ár þarf vart að kynna. Hún heitir Bríet og ætlar að endurtaka leikinn og halda sveitatónleika ásamt hljómsveit í bragganum að Ásbrekku, föstudagskvöldið 17. júlí.
Svæðið opnar kl. 19 og hægt verður að nálgast veitingasölu á svæðinu. Við mælum því með að mæta snemma og njóta sveitastemningarinnar.
Tónleikarnir eru sitjandi og mælst er til þess að fólk klæði sig eftir veðri.
Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 20
Flytjendur
-
Faxaflói / Great BayUmboðsskrifstofa, tónleikahald og bókanir
-
BríetMargverðlaunuð tónlistarkona best þekkt fyrir lögin sín Esjan, Feimin(n) og Rólegur kúreki.