Sveppafár smiðja fyrir 6-11 ára: Ert þú vitlaus í sveppi?

Sveppafár smiðja fyrir 6-11 ára: Ert þú vitlaus í sveppi?

Listasafn Reykjavíkur | Kjarvalsstaðir, Flókagata 24, 105 Reykjavík Kort

fim. 23.07.2026 10:00

Langar þig að kynnast sveppalingunum Slímóraling og Jötunglíma? Langar þig að vita hvernig Jötunglíma segir ,,halló “? Eða hvernig Slímóralingur tekur sporin?

Sveppafár býður 6–8 ára aðdáendum sveppa að taka þátt í vinnustofunni Sveppafári þar sem við kynnumst leyndardómsfullum heimi sveppa. Saman munum við kanna hvernig sveppir hljóma, hreyfa sig og eiga í samskiptum við umhverfi sitt. Með hjálp ímyndunaraflsins veltum við fyrir okkur lífríki sveppa með því að safna sveppa; -hljóðum, -myndum og, -hreyfingum í einhvers konar Sveppasafn. Þessar fjölskynja vangaveltur eru liður í þróun dansverksins Sveppafárs (e.Mushroomania).

Á vinnustofunni munum við:

Búa til hljóð sem eru innblásin af sveppum.

Búa til sveppa hreyfingar.

Teikna ímyndaða heiminn sem við byggjum saman, endar með lítilli sýningu.

Engin krafa um fyrri reynslu - aðeins forvitni og ævintýragirni!

Tími og dagsetningar:

23-24. júlí frá kl 10:00-11:00 fyrir 6-8 ára

23-24. júlí frá kl 12:00-13:00 fyrir 9-11 ára

Gott að hafa í huga:

Lengd: 60 mínútur

Fjöldi þátttakenda: 12 í hverjum hóp

Tungumál: Íslenska/Enska

Fatnaður: Þægileg föt

Hvað þarf að taka með: Ekkert - allt efni er til staðar

Aðgengi: Hægt að aðlaga eftir þörfum; vinsamlegast látið vita ef þörf er á sérstakri aðstoð.

Afrakstur: Safn teikninga og hljóða sem verður sett upp og verður til sýnis í bókasafni Gerðurbergs að vinnustofu lokinni.

Sveppafár (e. Mushroomania) er verkefni dansaranna Oliviu Teresa Due Pyszko og Selmu Reynisdóttur, tónskáldsins Maria-Carmelu Raso og ljós- og rýmis hönnuðsins Katerinu Blahutova. Verkefnið kannar töfrandi heim sveppa og hlaut vinnustofu Dansverkstæðisins og ASSITEJ fyrir þróun verka fyrir unga áhorfendur (vor 2025)

Skráning hér: https://forms.gle/ExUfzq1MmzFmKiwC6

Sjá viðburð á heimasíðu Borgarbókasafnsins: https://borgarbokasafn.is/events/695567

Nánari upplýsingar veita:

Selma Reynisdóttir | selmareynis@gmail.com

Olivia Pyszko | oliviaduepyszko@gmail.com

Flytjendur

  • Borgarbókasafnið
    Borgarbókasafnið
    Borgarbókasafn Reykjavíkur er almenningsbókasafn á sjö stöðum - opið rými allra. Hvert og eitt safn h