Regnbogahátíð fjölskyldunnar // Rainbow Family Festival
Elliðaárstöð, Rafstöðvarvegur 6, 110 Reykjavík Kort
mið. 05.08.2026 15:30
Regnbogahátíð fjölskyldunnar verður haldin á leikvelli Elliðaárstöðvarinnar í Elliðaárdalnum.
Hinsegin fjölskyldur ásamt Hinsegin dögum bjóða upp á skemmtilega dagskrá fyrir börn á öllum aldri. Leikvöllur á heimsmælikvarða. Andlitsmálning og sápukúlu stuð fyrir börnin. Til að toppa gleðina verður ís í boði fyrir öll.
Þetta er frábært tækifæri fyrir hinsegin fjölskyldur til að hittast, leika sér og eiga gleðilega stund saman.
Leikhópurinn Lotta sýnir Litaland á Lottutúni í dalnum kl. 14:00 og fá gestir Regnbogahátíðarinnar 1.000 kr. afslátt af miðaverði. Frítt er fyrir börn 2 ára og yngri.
Vonumst til að sjá sem flestar regnbogafjölskyldur koma saman, leika sér og eiga gleðilega stund saman.
Aðgengi: Viðburðurinn er aðgengilegur fólki sem notar hjólastól.
**
Flytjendur
-
Hinsegin dagar - Reykjavik PrideReykjavik Pride
-
Lotta
Theater group