Náðu forskoti á tímum framkvæmandi gervigreindar (e. Agentic AI)
Smárabíó, Hagasmári 1, 201 Kópavogur Kort
fim. 17.09.2026 13:00
Markaðsumhverfið gengur nú í gegnum sína stærstu umbreytingu til þessa.
Á RIMC 2026 beinum við sjónum að breytingu sem á sér stað í rauntíma: hvernig við tryggjum að vörumerkin okkar verði fyrir valinu í heimi framkvæmandi gervigreindar (e. Agentic AI).
Við skoðum hvernig áherslan er að færast frá því að elta smelli og umferð, yfir í að hámarka líkurnar á að skera sig úr þegar gervigreind er farin að taka ákvarðanir fyrir hönd neytenda.
Dagskrá:
Hvernig Þjóðkirkjan notaði stafræna tækni til að tengjast notendum betur
Snæbjörn Ragnarsson, sköpunarstjóri hjá Pipar\TBWA og Elín Elísabet Jóhannsdóttir Löve, fræðslustjóri Þjóðkirkjunnar
Hvað breyttist hjá IKEA? – Framtíð SEO, AEO/GEO, SEM og CRO
Arnoldo Cabrera, Digital Optimisation Manager hjá IKEA Global
Agentic Commerce Optimisation: How to prepare through UCP and ACP
Alex Moss, Principal SEO hjá Yoast
Omnichannel Gold: Why Physical Stores are the Ultimate Data Anchor for Agentic Commerce
Christian Sogn Iversen, forstjóri Sprellgruppen í Noregi
Framkvæmandi gervigreind og íslenskur raunveruleiki
Einar Thor, framkvæmdastjóri FINDS
Ráðstefnustjóri er Kristján Már Hauksson, CSO hjá Ceedr Nordic. Degi lýkur á líflegum pallborðsumræðum þar sem rædd verða hagnýt næstu skref. Að því loknu býðst þátttakendum að njóta léttra veitinga og skerpa tengslin á Happy hour.
Vinsamlegast athugið að dagskráin gæti tekið breytingum. Kaffi og te verður í boði á meðan ráðstefnunni stendur, og að henni lokinni bjóðum við upp á drykki og léttar veitingar.
Hádegisverður er ekki innifalinn.
Tryggðu þér miða og búðu þig undir næstu kynslóð markaðssetningar!
Flytjendur
-
Snæbjörn RagnarssonRithöfundur leikritsins.
-
Einar Thor
Framkvæmdastjóri FINDS
-
Kristján Már Hauksson
Sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu