Krefjandi hegðun barna á leikskólaaldri
Viska, Ægisgata 2, 900 Vestmannaeyjar Kort
fim. 20.08.2026 20:30
Krefjandi hegðun barna á leikskólaaldri, skilningur, tengsl og leiðir sem virka. Fræðsla fyrir foreldra, aðstandendur og aðra áhugasama.
„Barnið mitt er mjög klárt en samt hlýðir það ekki!“ „
Ég upplifi stöðuga valdabaráttu við barnið mitt!“
Valdabarátta og stjórnsemi eru orð sem foreldrar grípa í þegar börn sýna krefjandi hegðun en hvað liggur að baki hegðuninni?
Við sem foreldrar þurfum að huga að því til þess að eiga möguleika á að skilja, og koma í veg fyrir slíka hegðun.
Litlir hlutir eins og að fara í leikskólann, velja föt, sitja við matarborðið og leika geta orðið stórmál ef foreldrar og barn ná ekki saman. Tilfinningastjórnun hjá barni og foreldrum þarf að þjálfa. Einnig geta endalausar uppákomur í leikskóla verið erfiðar og komið niður á samskiptum heimilis og skóla.
Fyrirlesari er Jóna Kristín Gunnarsdóttir, grunnskólakennari og verkefnisstjóri fræðslumála hjá ADHD samtökunum.
ADHD Eyjar í samstarfi við ADHD samtökin bjóða öll velkomin.
Flytjendur
-
ADHD samtökinADHD Norðurland er útibú ADHD samtakanna sem hafa aðalskrifstofu sína að Háaleitisbraut 13 í Reykjavík. https://www.adhd.is/