Götumarkaður í Hafnarhúsi
Listasafn Reykjavíkur | Hafnarhús, Tryggvagata 17, 101 Reykjavík Kort
lau. 15.08.2026 12:00
Það mun allt iða af lífi á götumarkaði Listasafns Reykjavíkur í porti Hafnarhússins daga 15. og 16. ágúst.
Boðið verður upp á einstaka markaðsstemningu í hjarta borgarinnar þegar portið fyllist af yfir 50 spennandi og fjölbreyttum sölubásum með vintage-vörum, antík úr geymslunni, handverki, hönnun, bókum, vínylplötum og einstökum dýrgripum.
Markaðurinn verður opinn frá kl. 12:00 til 17:00, laugardag og sunnudag, 15.-16.ágúst í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi við Tryggvagötu 17, 101. Rvk.
Fjölskyldur eru sérstaklega hvattar til að mæta en sérstakt tombólu- og sölusvæði verður ætlað börnum sem vilja koma með sitt eigið dót á tombólu og reyna á söluhæfileikana. Engin skráning nauðsynleg á tombólusvæðið, bara mæta með góssið!
Götumarkaðurinn er haldinn í samstarfi við Visteyri og er ætlaður öllum sem hafa gaman af skapandi stemningu, hringrásarhagkerfi og því að uppgötva óvænta fjársjóði í skemmtilegu umhverfi. Taktu þátt í hringrásinni og gerðu góð kaup eða njóttu þess bara að skoða og forvitnast.
Á meðal seljenda eru Visteyri, NOWHERE, Wabi Sabi, Munir, Góði hirðirinn, Mino, Björkin Vintage og fleiri og fleiri!