X 97.7 kynnir: OASIS Heiðurstónleikar

X 97.7 kynnir: OASIS Heiðurstónleikar

Austurbæjarbíó, Snorrabraut 37, 105 Reykjavík Kort

lau. 21.11.2026 20:00

X 97.7 kynnir: OASIS Heiðurstónleikar

MIÐASALA er hafin https://stubb.is/events/bvrBeb

35 ár eru nú liðin frá stofnun bresku hljómsveitarinnar OASIS í Manchester á Englandi. Sveitin sendi frá sér sjö breiðskífur á árunum 1994 til 2008 en lagði upp laupana árið 2009 eftir röð atvika milli forsprakka sveitarinnar, bræðranna Liam og Noel Gallagher. Hljómsveitin kom saman á síðasta ári og hélt í tónleikaferðalag víðsvegar um heiminn og komust færri að en vildu, svo ekki sé minna sagt. Margir Íslendingar sátu uppi með sárt ennið, enda sveitin aldrei heldur spilað á Íslandi yfir ferilinn.

Hópur íslenskra tónlistarmanna og aðdáenda sveitarinnar hefur því tekið sig saman og hyggst flytja öll bestu lög sveitarinnar með stælum á Græna Hattinum á Akureyri, Silfurtunglinu í Austurbæ í Reykjavík og í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Verður allt lagt í sölurnar, hækkað vel í og sungið sig hása en þó, í mesta bróðerni þar sem nostalgía tíunda áratugarins flæðir í gegnum ærandi gítara og einstaka kvöldstund sem vottar þessari stórkostlegu sveit virðingarvott og tekur hattinn ofan.

Hljómsveitina skipa:

Daníel Hjálmtýsson - söngur/slagverk

Guðmundur Stefán Þorvaldsson - gítar

Hálfdán Árnason - bassi

Heiðar Örn Kristjánsson - söngur/gítar

Helgi Birgir Sigurðsson - trommur

Helgi Rúnar Gunnarsson - gítar

Jón Ingimundarson - hljómborð

14. nóvember - Græni Hatturinn, Akureyri - Miðar á Tix.is og á Graenihatturinn.is h

21. nóvember - Silfurtunglið í Reykjavík - Miðar á Stubb.is