Viva Hermeto! á Múlanum

Viva Hermeto! á Múlanum

Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

mið. 01.07.2026 20:00

Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með sumardagskrá sína með spennandi tónleikatvennu þriðjudaginn 30. júní og miðvikudaginn 1. júlí kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum klúbbsins kemur fram Viva Hermeto! sem er ný og spennandi tónleikadagskrá sem bassaleikarinn Sigmar Þór Matthíasson hefur sett saman. Um er að ræða 6 manna hljómsveit sem leikur m.a. tónlist brasilíska tónskáldsins Hermeto Pascoal en hann er nýfallinn frá, þann 13. september síðastliðinn, 89 ára að aldri. Markmiðið er þó að fagna lífi þessa merka tónlistarmanns en hann hefði orðið 90 ára þann 22. júní 2026. Tónlistinni má lýsa sem nútímalegri brasilískri tónlist sem blandar saman akústískum sóló hljóðfærum og rafmagnaðri hrynsveit. Á dagskránni má heyra ýmsar gerðir brasilískra stíla, m.a. samba, choro, baião, maracatu, marcha og frevo. Allar útsetningar gerði bandaríski gítarleikarinn og kennarinn Richard Boukas en það var hann sem kynnti Sigmari fyrir tónlist Hermeto Pascoal þegar hann var í námi við The New School í New York árin 2013-2016.

Haukur Gröndal, saxófónn, klarinett og flauta

Ólafur Jónsson, saxófónn

Ásgeir Ásgeirsson, gítar

Ingi Bjarni Skúlason, píanó/hljómborð

Sigmar Þór Matthíasson, bassi

Erik Qvick, trommur og slagverk

Viva Hermeto!

Viva Hermeto!

Spennandi sumardagskrá Múlans heldur síðan áfram á þriðjudags- og miðvikudagskvöldum fram í miðjan ágúst. Múlinn er á sínu 29. starfsári en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans.

Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg, Tónlistarsjóði og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.

Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna.

Tónleikar Múlans fara fram í sumar á þriðjudags- og á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 5200 og 3800 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu

Flytjendur

  • Sigmar Þór Matthíasson
    Sigmar Þór Matthíasson

    Hljómsveit, kontrabassi

  • Haukur Gröndal
    Haukur Gröndal

    saxófónn

  • Ólafur Jónsson
    Ólafur Jónsson

    saxófónn

  • Ingi Bjarni
    Ingi Bjarni

    Meðleikari

  • Erik Qvick
    About Drummer Erik Qvick has assembled a new exciting quartet for Reykjavík Jazz, joining Erik in the quartet are Icelandic Jazz mainstays Ásgeir Jón Ásgeirsson on guitar, Haukur Gröndal on saxophone and Tómas Jónsson on Hammondorgan. The programme consists of original compositions and standards arranged for the quartet. PERFORMERS: Erik Qvick: drums Tómas Jónsson: organ Ásgeir Ásgeirsson: guitar Haukur Gröndal: saxophone