How to become Icelandic in 60 minutes
Harpa | Kaldalón, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
fim. 30.07.2026 19:00
HOW TO BECOME ICELANDIC IN 60 MINTUES er uppistands-leiksýning sem fer fram á ensku. Sýningin er samin og framleidd af Bjarna Hauki Þórssyni og leikstýrð af Sigurði Sigurjónssyni. Leikarar eru: Bjarni Baldvisson og Jóhann Alfreð Kristinsson.
HOW TO BECOME ICELANDIC IN 60 MINTUES er sambland af uppistandi og söguleikhúsi þar sem reynt er að kenna þeim sem sýninguna sækja hvað það er að vera íslenskur. Sprenghlægileg klukkustundar löng sýning fyrir fólk á öllum aldri. Samstarf Bjarna Hauks og Sigurðar ætti að vera Íslendingum vel kunnugt enda hafa þeir búið til nokkrar vinsælar sýningar; Hellisbúinn, Pabbinn, Afinn, Maður sem heitir Ove og Pabbinn finnur afann.
Sýningin hefur gengið fyrir fullu húsi í Hörpu frá því að hún var frumsýnd árið 2012. Fleiri en 100 þúsund manns hafa séð HOW TO BECOME ICELANDIC IN 60 MINUTES og nálgast sýningarfjöldinn 1000, sem er Íslandsmet.
Sýningin fer fram á ensku.
Flytjendur
-
Bjarni Baldvisson
Íslenskur leikari, einn af aðalleikurum í sýningunni.
-
Jóhann Alfreð KristinssonÍslenskur leikari, einn af aðalleikurum í sýningunni.
-
Bjarni Haukur ÞórssonLeikgerð & leikstjórn
-
Sigurður Sigurjónsson
Leikstýrð af Sigurði Sigurjónssyni.