Aðalfundur Hinsegin daga 2026

Aðalfundur Hinsegin daga 2026

Samtökin '78, Suðurgata 3, 101 Reykjavík Kort

fim 19. nóv 2026 17:30

Bústaðu viðburðinn!

Aðalfundur Hinsegin daga í Reykjavík – Reykjavik Pride verður haldinn fimmtudaginn 19. nóvember 2026. Fundurinn fer fram í húsnæði Samtakanna ’78 að Suðurgötu 3 og hefst kl. 17:30.

Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. Nánari upplýsingar um dagskrá er að finna á heimasíðu okkar -> https://hinsegindagar.is/adalfundur-hinsegin-daga-2026/

KOSNINGAR

Samkvæmt samþykktum félagsins skal á aðalfundi kjósa stjórnarmenn til tveggja ára í senn. Kosið er í embætti stjórnar á víxl, að jafnaði er því kosið í fjögur embætti annað árið og í þrjú embætti hitt. Í ár er samkvæmt reglubundinni víxlkosningu kosið um embætti gjaldkera, ritara og tveggja meðstjórnenda til tveggja ára.

Auk reglubundinna kosninga verður kosið um embætti formanns, þar sem það embætti losnar við aðalfund áður en yfirstandandi kjörtímabili lýkur.

Á aðalfundi verður því kosið um:

Formann, til eins árs

Gjaldkera, til tveggja ára

Ritara, til tveggja ára

Tvo meðstjórnendur, til tveggja ára

Um kjörgengi til stjórnar fer samkvæmt lið 3.2 í samþykktum félagsins.

Framboð skulu berast skriflega þremur sólarhringum fyrir aðalfund. Áhugasöm skulu því senda framboð á netfangið pride@hinsegindagar.is fyrir kl. 17:30 mánudaginn 16. nóvember 2026. Frambjóðendur skulu tilgreina þau embætti sem þau sækjast eftir.

Nánari upplýsingar um verkefni stjórnar veitir Helga Haraldsdóttir, formaður Hinsegin daga, á netfanginu helga@hinsegindagar.is

Sjáumst á aðalfundi Hinsegin daga!