Jazz í Djúpinu // Hannes Arason kvartett
Djúpið, Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík Kort
fim. 09.07.2026 20:30
ÍSLENSKA
Hannes Arason Kvartett spilar frumsamda músík eftir meðlimi, framsækinn nútímadjass í frjálsari kantinum. Kvartettinn nýtir sér hljómalausa hljóðfæraskipanina til að opna fyrir möguleika í allar áttir, þar sem áhersla er lögð á samspuna og spilagleði. Í Djúpinu þann 9. júlí næstkomandi mun kvartettinn spila glænýtt efni í bland við gamalt, þar á meðal efni af fyrstu plötu Hannesar, Frífólk, sem kom út 2024. Á henni var sóttur innblástur frá sænskri og íslenskri þjóðlagatónlist en kvartettinn dregur áhrif úr ýmsum áttum - til að mynda Cecil Taylor, Schönberg, Albert Ayler og Ligeti.
Hannes Arason - Trompet, flügelhorn
Björgvin Ragnar Hjálmarsson - Tenór saxófónn, baritónsaxófónn
Birgir Steinn Theodórsson - Kontrabassi
Sólrún Mjöll Kjartansdóttir - Trommur
- -
Tónleikaröðin Jazz í Djúpinu fer fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:30 sumarið 2026. Djúpið er kjallarinn á veitingastaðnum Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). Inngangur í Djúpið er að aftan, til móts við Bæjarins beztu. Inngangurinn í kjallarann opnar kl. 20:00. Miðaverð er 4.000 ISK, miðar eru seldir við innganginn og í forsölu. Tónleikaröðin eru skipulögð af Jazzdeild FÍH og er styrkt af Menningarsjóði FÍH, Tónlistarsjóði og Reykjavíkurborg. Athugið að ekki er hjólastólaaðgengi á staðnum.
Flytjendur
-
Jazz í Djúpinu
Tónleikaröðin Jazz í Djúpinu fer fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:30 í Djúpinu sem er kjallarinn á veitingastaðnum Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). Inngangur í Djúpið er að aftan, til móts við Bæjarins beztu.
-
Iceland JazzInformation about the Icelandic Jazz and Improvised scene. News about album releases, concerts in Iceland, and concerts performed by Icelandic jazz musicians abroad // www.icelandjazz.is