Opið hús – Kynntu þér samfélagið!
Stéttin - Húsavík, Hafnarstétt 3, 640 Húsavík Kort
fim. 03.09.2026 16:00
Langar þig að kynnast því fjölbreytta starfi sem er í boði í samfélaginu okkar? Komdu á opið hús þar sem félagasamtök, íþróttafélög, menningarstarfsemi og aðrir samfélagsaðilar kynna starfsemi sína og taka vel á móti gestum.
Þetta verður líflegur og skemmtilegur viðburður þar sem þú getur:
✨ Kynnt þér fjölbreytt félags- og tómstundastarf.
✨ Spjallað við fulltrúa félaga og stofnana.
✨ Kynnst nýju fólki og myndað tengsl.
✨ Fundið félagastarf eða áhugamál sem hentar þér.
Viðburðurinn er ætlaður öllum íbúum, hvort sem þú ert nýflutt/ur á svæðið eða hefur búið hér lengi. Markmiðið er að gera fólki auðveldara að finna sér stað í samfélaginu, efla tengsl og hvetja til þátttöku í öflugu félags-, menningar- og íþróttastarfi.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin!
Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar Norðurlands eystra
Gefum íslenskunni séns – samfélagið er kennslustofan.
3. september
Kl. 16:00–18:00