Björgvin - Maður sviðs og söngva - Aukatónleikar

Björgvin - Maður sviðs og söngva - Aukatónleikar

Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

lau. 28.11.2026 16:00

Björgvin Halldórsson var maður sviðs og söngva. Hann er goðsögn í íslensku tónlistarlífi. Laugardaginn 28. nóvember hittumst við í Eldborg og heiðrum minningu hans.

Björgvin gerði tónlistina að ævistarfi og eftir hann liggja margar helstu perlur íslenskrar dægurtónlistar. Sjálfur hafði hann í huga að halda upp á 75 ára afmæli sitt með heiðurstónleikum og var undirbúningur hafinn þegar hann lést skyndilega þann 9. apríl síðastliðinn. Í samráði við fjölskyldu Bjögvins var tekin sú ákvörðun að halda áfram með hugmyndir sem þegar voru komnar fram. Eldborg var bókuð og Björgvin var sjálfur búinn að velja mynd í plakatið og langt kominn með val á lögum og söngvurum.

Björgvin hugsaði stórt og verður því allt lagt í sölurnar að gera glæsilega tónleika í minningu hans. Við vitum jú öll hver hann var!

Svala Bjōrgvins vinnur nú að endurgerð af laginu Skýið, sem faðir hennar Björgvin samdi árið 1978 og kom út á pötunni Ég skal syngja fyrir þig. Allir Íslendingar þekkja þetta lag og Svala flutti það svo eftirminnilega í jarðarför föður síns. Skýið með Svölu kemur út föstudaginn 12. júní.

Svala og Krummi Björgvinsbörn leiða landslið íslenskra tónlistarmanna á svið Eldborgar og í sameiningu flytja þau okkur tónlistina sem Björgvin gaf okkur síðastliðna áratugi.

Ógleymanlegt kvöld í vændum þar sem Vetrarsól brýst í gegnum Skýið og okkar Eina ósk er að Riddari götunnar og Gullvagninn rati rétta leið. Björgvin, við Syngjum fyrir þig og Þó líði ár og öld mun Minning þín lifa.

GESTGJAFAR:

Svala

Krummi

SÖNGVARAR:

Ásgeir Trausti

Eyjólfur Kristjánsson

GDRN

Helgi Björnsson

Mugison

Ragnheiður Gröndal

Sigga Beinteins

Sigríður Thorlacius

Stefán Hilmarsson

SÉRSTAKUR GESTUR:

Ari Eldjárn

HLJÓMSVEIT:

Þóris Úlfarsson – Hljómborð, hljómsveitarstjórn, útsetningar

Bjarni Sigurðarson – Gítar

Einar Scheving – Slagverk

Gunnlaugur Briem – Trommur

Jón Elvar Hafsteinsson – Gítar

Ómar Guðjónsson – Pedal Steel

Óttar Sæmundsen – Bassi

Phillip Joseph Doyle – Sax

Tómas Jónsson – Hljómborð

BAKRADDIR:

Andrea Ingvarsdóttir

Kristján Gíslason

Íris Lind

KÓR:

Karlakórinn Fóstbræður

LEIKSTJÓRN:

Gunnar Helgason

Flytjendur