Algóritminn og bakslagið: Hver stjórnar hvernig við hugsum?

Algóritminn og bakslagið: Hver stjórnar hvernig við hugsum?

Hotel Reykjavik Grand, Sigtún 38, 105 Reykjavík Kort

mið 11. nóv 2026 13:00

Bústaðu viðburðinn!

Norðurlöndin hafa náð miklum árangri í að standa vörð um jafnrétti og réttindi hinsegin fólks, en hvernig samræmist það algóritmum sem hafa það eitt að markmiði að líma okkur sem lengst við skjáinn, jafnvel þótt það valdi skautun og bakslagi? Hvað ef sakleysislegur smellur á aðeins eitt vídeó mótar allt efni sem ber fyrir augu ungra notenda framvegis?

NORDREF, Transfeminiinit, Samtökin 78 og Ofbeldisvarnaskólinn kynna nýjar norrænar rannsóknarniðurstöður um hvernig efni algóritmar samfélagsmiðlanna halda að ungu fólki um transmálefni og bjóða gestum að svara spurningunni: Geta algóritmar hatað? Á tímum gervigreindar, upplýsingaóreiðu og áróðurs, hver stjórnar því hvað við hugsum?

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, fer með opnunarávarp. Aðrir viðmælendur eru yfirmaður stefnumótunar hjá TikTok, umboðsmaður jafnréttismála í Finnlandi, framkvæmdastjóri Samtakanna 78, yfirmaður stefnumótunar hjá SASHA SafeShare, framkvæmdastjóri Transfeminiinit, sérfræðingur frá Netvís og fleiri.

Staðsetning: Háteigur, Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni.

Dagskráin fer fram á ensku.

Aðgangur ókeypis á meðan húsrúm leyfir – ATH SKRÁNING FER FRAM HÉR OG MIÐI ER SKILYRÐI FYRIR INNGÖNGU:

https://www.nordref.org/event-details/algoritminn-og-bakslagid-hver-stjornar-hvad-vid-hugsum