Allraheilagramessa
Borgarneskirkja, Brattagata 8, 310 Borgarnes Kort
sun 1. nóv 2026 18:00
Bústaðu viðburðinn!Hrekkjavakan er haldin hátíðleg þann 31. október ár hvert
Hrekkjavaka nefnist á ensku halloween - stytting á nafninu „all hallows’ eve“ - vakan fyrir allraheilagramessu, sem er daginn eftir.
1. nóvember er allraheilagramessa eða allrasálnamessa í kirkjum landsins, þar sem við biðjum fyrir látnum ástvinum.
Sú hátíð á sér fornar rætur, en heimildir vitna um messur þar sem beðið var fyrir látnum strax á 4. öld eftir Krist.
Allraheilagramessa varð snemma einn af helgustu messudögum íslensku kirkjunnar. Á 17. öld þekkist hátíðin í íslensku máli undir nöfnunum „sálnadagur“ og „heilagar sálir“, en um árið 1700 var núverandi heiti komið inn og hefur verið það síðan. Allraheilagramessa
Í kirkjunni komum við saman á allra heilagramessu, leyfum huganum að dvelja hjá öllum þeim sem við höfðum í lífi okkar og elskum, en eru nú fallin frá. Við komum saman til þess að þakka fyrir alla góðu minnigarnar, biðja fyrir og heiðra minningu ástvina okkar.
Má bjóða þér að koma?