Andrés Þór tríó – Relocate - Múlinn Jazzklúbbur
Harpa | Björtuloft, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
mið 4. nóv 2026 20:00
Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með haustdadagskrá sína með spennandi tónleikum miðvikudaginn 4. nóvember kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum kemur fram tríó gítarleikarans Andrésar Þórs og verður flutt efni af nýjustu plötu þess, Relocate. Platan kom út um miðjan ágúst hjá norsku plötuútgáfunni Losen Records. Tríóið skipa Andrésar, Nico Moreux á bassa og Magnús Trygvason Eliassen á trommur. Þeir hafa leikið saman um árabil og myndað sterka heild þar sem samspil, spuni og opið rými skipa stóran sess. Relocate hefur að geyma nýja tónlist eftir Andrés Þór með áherslu á samspili tónsmíða og spuna. Tónlistin sækir í fjölbreyttan orðaforða djassins en gefur jafnframt hljóðfæraleikurunum mikið rými til að bregðast hver við öðrum og leyfa tónlistinni að þróast í rauntíma. Á tónleikunum verður platan í forgrunni, ásamt öðru efni úr katalóg tríósins. Þar má búast við lifandi og kraftmiklum flutningi þar sem tónsmíðarnar taka á sig nýja mynd.
Spennandi haustdagskrá Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum fram í mðjan desember. Múlinn er að á sínu 29. starfsári en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans. Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu. Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna. Tónleikar Múlans fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 5200 og 3800 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu