ANDRÝMI // dagur í serimóníu með Konum í Nàttúrunni

ANDRÝMI // dagur í serimóníu með Konum í Nàttúrunni

Laugarvatn, , 806 Laugarvatn Kort

lau 28. nóv 2026 10:00

Bústaðu viðburðinn!

Andrými // Dagur í serimóníu með konum í náttúrunni.

Í nágrenni Laugarvatns · með Láru og Maríu

❤️

Velkomnar í serimóníu með konum í náttúrunni.

Heill dagur af tengingu, hlýju, næringu.

Við byrjum í hring með innilegri kakóseremóníu og dveljum saman í kyrrð. Svo fáum við okkur létta næringu áður en við höldum út í vetrarloftið. Við göngum rólega og gefum okkur tíma til að staldra við, taka eftir birtunni og njóta þess að vera úti.

Eftir gönguna tekur ylurinn við. Við hlýjum okkur í saunu og heitum potti, leyfum okkur að bráðna aðeins og drekkum vel af vatni. Að lokum setjumst við saman til borðs og njótum nærandi kvöldmáltíðar áður en við höldum heim.

Okkur langar að hafa daginn rúman. Að það gefist tími til að klára samtal, fá sér annan bolla eða staldra við á göngunni og horfa í kringum sig.

Drög að dagskrá

• 10.00 ~ Mæting & lending.

• 10.30 ~ Opnunarhringur & innileg kakóseremónía með hlustun og kyrrð.

Létt næring fyrir ferð út í náttúruna:

• 13:30 ~ Róleg ganga í nánd við fegurð náttúrunnar.

• 15.00 ~ Sauna og heitur pottur. Bráðna, vökva, næra.

• 17:30 ~ Nærandi kvöldmáltíð.

• 19:00 ~ Heimför.

Verð · 19.900 kr. á konu.

Öll dagskráin er innifalin, ásamt kakói, hádegismat og aðgangi að saunu og heitum potti.

Skráning:

konurinatturunni@gmail.com

Við hlökkum til að eiga daginn með þér.

❤️