ANOK
Hallgrímskirkja, Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík Kort
fös 6. nóv 2026 18:00
ANOK
Iceland Airwaves PARTNER EVENT @ Hallgrímskirkja
Föstudagur 6. nóvember 2026 kl. 18:00
Miðasala fer fram í Hallgrímskirkju og á tix.is
Aðgangseyrir 5.900 kr.
Anok er nýtt verk eftir Högna Egilsson samið fyrir Cantoque Ensemble, orgel, selló, slagverk og einsöngvara.
Verkið sækir texta sinn í fornt ljóð sem fannst við Nag Hammadi í Efra-Egyptalandi árið 1945, afritað á fjórðu öld. Þar er engin frásögn og engin ein mynd sem heldur sér. Aðeins rödd.
,,Ég er móðir og dóttir.
Ég er ljós og myrkur, eiginkona og meyja.
Ég er líf og dauði, stríð og friður, eyðilegging og endursköpun.
Ég er skömm og hugrekki, þekking og fáfræði. Ég er efni og efnisleysa.”
Flytjendur:
Högni Egilsson, tónskáld / stjórnandi
Cantoque Ensemble
Hljómsveit: Orgel, selló og slagverk
Einsöngvarar: Hallveig Rúnarsdóttir og Hildigunnur Einarsdóttir
Tónleikarnir eru samstarf Cantoque Ensemble, Iceland Airwaves og Hallgrímskirkju. Þeir eru hluti af tónleikaröðinni Haust í Hallgrímskirkju 2026 og haldinn sem Iceland Airwaves Partner Event.
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR