Ásta Dóra leikur Grieg  - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Ásta Dóra leikur Grieg - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

fim 11. mar 2027 19:30

Bústaðu viðburðinn!

Ásta Dóra Finnsdóttir er ein af okkar efnilegustu píanóleikurum og stundar nú framhaldsnám við einn virtasta tónlistarskóla heims, Curtis Institute of Music í Bandaríkjunum. Hún leikur hér hinn síunga píanókonsert Griegs sem geislar af lífi og krafti. Konsertinn sló í gegn strax við frumflutning og hefur síðan verið eitt vinsælasta tónverk Griegs. Á síðari hluta tónleikanna verður Íslandsfrumflutningur á nýju stórvirki eftir Önnu Þorvaldsdóttur, en jafnan er beðið eftir nýjum verkum frá Önnu með mikilli eftirvæntingu um allan heim. Verkið var pantað af Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveitinni í Boston, Gewandhaus-hljómsveitinni í Leipzig og Fílharmóníuhljómsveitinni í Helsinki. Hin norska Tabita Berglund, stjórnandi tónleikanna, er á hraðri uppleið í heimi hljómsveitarstjóra og tekur við stöðu aðalhljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitarinnar í Bergen haustið 2026.

Efnisskrá

Carl Nielsen: Helíos forleikur

Edvard Grieg: Píanókonsert í a-moll

Anna Þorvaldsdóttir: Shadows of Solace – frumfl. á Íslandi

Hljómsveitarstjóri

Tabita Berglund

Einleikari

Ásta Dóra Finnsdóttir