Aurora vatnslitahátíð Íslands – Aurora Watercolor Festival 2026
Listasafnið á Akureyri, Kaupvangsstræti 12, 600 Akureyri Kort
fim. 10.09.2026 12:00
Aurora Vatnslitahátíð Íslands 2026, er alþjóðleg hátíð sem haldin verður á Akureyri 10.–13. september og í tengslum við hátíðina verður sýning í Listasafninu á Akureyri 10.–27. september.
Heimsfrægum vatnslitamálurum er boðið að sækja hátíðina, en einnig innlendum málurum sem þykja skara fram úr. Þess er vænst að vatnslitamálarar hvaðanæva að, innlendir sem erlendir, heimsæki Akureyri til að njóta þeirra viðburða sem í boði verða. Verndari hátíðarinnar verður listmálarinn Guðmundur Ármann Sigurjónsson.
Staðfestir listamenn sem bjóða upp á námskeið og sýnikennslu eru Björn Bernström frá Svíþjóð, Julia Ustinovich frá Póllandi, Julia Barminova frá Portúgal, Nicolas Lopez frá Perú og Prafull Sawant frá Indlandi.
Dómnefnd velur úr innsendum verkum sem verða á sýningunni í Listasafninu 10.–27. september. Á hátíðinni sjálfri 10.–13. september verður boðið upp á vinnustofur og námskeið, sýnikennslu og kynningar á vörumerkjum sem tengjast vatnslitum.
Vatnslitahátíðin er haldin í samstarfi við Listasafnið á Akureyri og Vatnslitafélag Íslands.
Verkefnisstjóri: Ragnar Hólm Ragnarsson
Flytjendur
-
Listasafnið á Akureyri / Akureyri Art MuseumListasafnið á Akureyri is the Akureyri Art Museum http://www.listak.is
Listasafnið á Akureyri er í eigu Akureyrarbæjar og starfar í þágu almennings.