Les métèques: Frönsk flökkulög
Hannesarholt, Grundarstigur 10, 101 Reykjavík Kort
fös. 18.09.2026 20:00
Tónlist á sér engin landamæri, dægurlög ferðast milli landa, tungumála og menningarheima og öðlast sífellt nýtt líf. Sum þeirra verða jafnvel vinsælli í nýjum búningi en í sinni upprunalegu mynd.
Les Métèques flytja sínar eigin útgáfur af þekktum frönskum perlum frá síðustu öld. Hér hljóma m.a. kunnugleg lög í nýju ljósi; lög sem margir þekkja betur í enskum útgáfum, eins og Les feuilles mortes (Autumn Leaves), Je t'appartiens (Let It Be Me) og Comme d'habitude (My Way).
Les Métèques skipa: Ásta Ingibjartsdóttir (söngur), Eyjólfur Már Sigurðsson (söngur og gítar), Olivier Moschetta (söngur og bassi) og Ragnar Skúlason (fiðla). Kynnir og sögumaður er Gérard Lemarquis, sem leiðir áheyrendur í gegnum sögur laganna og listamannanna sem gerðu þau ódauðleg.
Flytjendur
-
Les métèquesLes métèques er hópur tónlistarmanna sem unna franskri dægurtónlist. Hópinn skipa: Ásta Ingibjartsdóttir (söngur), Eyjólfur Már Sigurðsson (gítar og söngur), Olivier Moschetta (bassi og söngur) og Ragnar Skúlason (fiðla) -
Ragnar SkúlasonViolinist.