Yfir Mat – skapandi vinnustofa fyrir öll
Sjallinn, Gránufélagsgata 4, 600 Akureyri Kort
lau. 27.06.2026 15:00
Málum saman borðhald í skapandi vinnustofum
Listakonan Unnur Stella Níelsdóttir býður almenningi að taka þátt í skapandi vinnustofu í Start Stúdíó á Gránufélagsgötu 4 á Akureyri. Vinnustofan er opin öllum, þátttaka er gjaldfrjáls og verkefnið er styrkt af Listasumri á Akureyri.
Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á: unnur.stellaa@gmail.com
Takið fram hvaða dagsetningu þið viljið koma á, þar sem það verða þrjár vinnustofur í boði, 26. og 27. júní og 6. júlí.
Yfir Mat er þátttökumiðað listaverkefni þar sem þátttakendur koma saman og mála hluti tengda mat, borðhaldi og samveru. Verkefnið skoðar hvernig ólíkir einstaklingar upplifa og túlka sömu hluti á mismunandi hátt og hvernig myndlist getur skapað vettvang fyrir samtal og sameiginlega reynslu.
Í vinnustofunni vinna þátttakendur með viðfangsefni sem tengjast matarmenningu, samveru og daglegu lífi. Úr verður fjölbreytt safn verka sem endurspeglar ólík sjónarhorn, reynslu og raddir samfélagsins.
Öll eru velkomin og engin fyrri reynsla af myndlist er nauðsynleg.
Viðburðurinn er styrktur af Listasumri 2026.
Viðburðadagatal Listasumars má finna á www.listasumar.is
Flytjendur
-
Listasumar á AkureyriFjölbreyttar uppákomur og upplifanir á Listasumri.