Menningarnott jazz concert @ Sweet Aurora
Sweet Aurora, Bergstaðastræti 14, 101 Reykjavík Kort
lau. 22.08.2026 16:00
Andrés Þór & Nico Moreaux Duo á Menningarnótt
Á Menningarnótt, laugardaginn 22. ágúst kl. 16:00, koma gítarleikarinn Andrés Þór og bassaleikarinn Nico Moreaux fram í Sweet Aurora Reykjavík, Bergstaðarstræti 14, 101 Reykjavík.
Á þessum síðdegistónleikum bjóða þeir upp á náið og notalegt tónlistarferðalag þar sem eigin tónverk mæta vel völdum djassstandördum. Tónlist þeirra einkennist af hlýjum og fjölbreyttum hljóðheimi þar sem samspil, hljómur og andrými fá að njóta sín. Útkoman er bæði ljóðræn og íhugul og gefur tónlistarmönnunum svigrúm til að skapa lifandi samtal í gegnum spuna og næmni.
Andrés og Nico hafa unnið saman um árabil í fjölbreyttum verkefnum, meðal annars í tríói Andrésar, Poney Moon hljómsveit Nico og Multiverse kvartett trommuleikarans Scott McLemore. Þeir deila sameiginlegri ástríðu fyrir djassi með áhrifum frá þjóðlagatónlist, Americana og impressjónískum stefnum.
Verið velkomin á hlýlega og einstaka tónlistarupplifun í notalegu umhverfi Sweet Aurora á Menningarnótt.
Flytjendur
-
Andrés Þór
Gítarleikari
-
Nico Moreaux
Athugið! Kvöldpassi er í boði öll kvöld hátíðarinnar í Hörpu en hann veitir aðgang að öllum tónleikum viðkomandi kvölds. Ekki er selt inn á staka tónleika á kvölddagskrá í Hörpu. Nicolas Moreaux er franskur bassaleikari, búsettur á Íslandi. Á Jazzhátíð Reykjavíkur 2022 mun hann kynna nýja tónlist eftir hann sjálfan, útsetta af Phillipe Maniez, sem hefur meðal annars unnið með Kurt Rosenwinkel Big band og Dedication big band. Á tónleikunum kemur Nicolas fram ásamt nónett sínum, sem samanstendur af íslenskum tónlistarmönnum, sem Nicolas spilar reglulega með hérlendis og erlendis. Tónlistin flakkar á milli þess að vera þenkjandi og orkumikil og er að mestu innblásin af lífi Nicolas, andagift og náttúrunni. Nico Moreaux : kontrabassi Andrés Þór Gunnlaugsson : gítar Sigurður Flosason : altó saxófónn Óskar Guðjónsson : tenór saxófónn Jóel Pálsson : tenór saxófónn Eyþór Gunnarsson : píanó Snorri Sigurðarson : trompet Scott Mclemore : trommur Matthías Hemstock : slagverk
-
Menningarnótt
Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar.