Reddingakaffi
Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort
sun. 06.12.2026 13:00
Reddingakaffi er mánaðarlegur viðburður þar sem hægt er að fá aðstoð frá sjálfboðaliðum og öðrum viðstöddum við að gera við hluti og vinna gegn sóun.
Komdu með hluti sem þer þykir vænt um en eru hættir að virka. Föt, raftæki, brotinn bolli, sprungin vindsæng – við reynum eftir bestu getu að laga og bæta saman.
Hjálpumst við að vinna gegn sóun og halda hlutum lengur í hringrásinni.
♻️ GERUM VIÐ HLUTI SAMAN! ♻️
DAGSKRÁ 2026:
Sunnudagur, 1. mars - í samstarfi við Framtíðarfestivalið
Sunnudagur, 12. apríl
Sunnudagur, 3. maí
Sunnudagur, 7. júní
Sunnudagur, 6. september
Sunnudagur, 4. október
Sunnudagur, 1. nóvember
Sunnudagur, 6. desember
Reddingakaffi er á vegum Hringrásarseturs Íslands og Munasafns RVK Tool Library.
Flytjendur
-
Hringrásarsetur Íslands
Starfsemi félagsins er að styðja við vöxt og stækkun Hringrásar Hagkerfisins á Íslandi sem og ýta undir eftirfylgni á markmiðum Sameinuðu þjóðana og hrefinguna Réttur til Viðgerða.
-
Munasafn RVK Tool Library
Hringrásarsafnið þróaðist úr RVK Tool Library í net deilistöðva um Reykjavík. Við veitum aðgang að verkfærum og búnaði fyrir ýmis verkefni. Dreift kerfi eykur aðgengi, nýtni og sjálfbærni. Vertu með og uppgötvaðu kraft hlutdeildar!
-
FramtíðarfestivalA festival focused on future skills and connections.