Í tilefni af Menningarnótt verða sýndar þrjár, stuttar, danskar gamanmyndir í Aðalstræti: "Nornin og reiðhjólamaðurinn" (Heksen og Cyclisten, 1909), "Flutningsdagsraunir" (Flyttedagskvaler, 1915) og "Ég vil tala við Jørgensen!" (Jeg sku' tale med Jør'nsen, 1917) Drepfyndnar og liprar myndir fyrir alla fjölskylduna.
Sýningar verða stöðugt kl. 17:00 – 21:00 í Reykjavíkur Biograph-Theater í Aðalstræti 10. Aðgangur ókeypis og öll velkomin.
Gamanmyndasýning á Menningarnótt
Landnámssýning, Aðalstræti 16, 101 Reykjavík Kort
lau. 22.08.2026 17:00
Viðburðurinn er hluti af fjölbreyttri dagskrá Borgarsögusafns á Menningarnótt.
Aðgengi er gott í Aðalstræti. Athugið þó að það er fremur lítil lýsing inni í sýningarsal hjá skálarústinni og þar er gólfið ójafnt á köflum. Leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið.
Aðgengi er gott í Aðalstræti. Athugið þó að það er fremur lítil lýsing inni í sýningarsal hjá skálarústinni og þar er gólfið ójafnt á köflum. Leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið.
Flytjendur
-
Menningarnótt
Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar.