Fornbíladagurinn / Antique Automobile Day

Fornbíladagurinn / Antique Automobile Day

Kistuhyl 4, 110 Reykjavík, Iceland,

sun. 05.07.2026 13:00

Sunnudaginn 5. júlí kl 13-16 verður boðið upp á hina árvissu og vinsælu fornbílasýningu á Árbæjarsafni. Fornbílaklúbbur Íslands sýnir ýmsa merka bíla í eigu félagsmanna á safnsvæðinu. Félagsmenn verða á staðnum og spjalla við gesti 🚗

Dagskráin stendur frá klukkan 13.00 – 16.00 en safnið er opið 10.00 – 17.00.

Ókeypis aðgangur fyrir börn, öryrkja og menningarkortshafa. Öll velkomin!

Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.

Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur).

Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins.

Öll bílastæði eru ókeypis.

Flytjendur