Að byggja líf sitt á bjargi - kvöldmessa

Að byggja líf sitt á bjargi - kvöldmessa

Bústaðakirkja, Tunguvegur 25, 108 Reykjavík Kort

sun. 26.07.2026 20:00

Kvöldmessa fer fram í Bústaðakirkju sunnudaginn 26. júlí nk. kl. 20:00. Jónas Þórir leikur á flygil og kórmeðlimir úr Kammerkór Bústaðakirkju munu syngja og leiða almennan safnaðarsöng. Séra Þorvaldur Víðisson flytur hugvekju og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. 
Kvöldmessurnar í Bústaðakirkju eru heimilislegar og hátíðlegar. 
Guðspjallatexti dagsins er úr Fjallræðunni, dæmisagan um mennina sem byggðu hús sín, annars vegar á sandi og hins vegar á bjargi. 
Verið hjartanlega velkomin til þátttöku í kvöldmessu í Bústaðakirkju. 

Flytjendur