Baby Rave
Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
lau 14. nóv 2026 14:00
Baby Rave (fyrir allan aldur)
📍 Staður: Hörpuhorn í Hörpu
📅 Dagsetning: Laugardagur 14. nóvember
🕐 Tími: Kl. 14:00
👶 Aldur: Allur aldur
🎟 Aðgangur: Ókeypis og engin skráning nauðsynleg
🤝 Í samstarfi við: Reykjavík Dance Festival
Dans, tónlist og samvera fyrir alla fjölskylduna!
Baby Rave er dansviðburður fyrir börn á öllum aldri og fjölskyldur þeirra þar sem allir eru velkomnir. Börnin kynnast danstónlist frá ýmsum heimshornum og með hjálp ímyndunaraflsins ferðast þátttakendur um heiminn á dansgólfinu.
Markmiðið er að skapa öruggt og opið rými þar sem börn og fullorðnir geta dansað, leikið sér og átt góða stund saman – hvert á sinn hátt. Um leið er sáð fræjum fordómaleysis og lögð áhersla á frelsi, fjölbreytileika og gleði.
Komdu með fjölskylduna og slepptu þér á dansgólfinu í skemmtilegu og vingjarnlegu rave-i fyrir allar kynslóðir!