Bálrautt teppi úr bútasaum

Bálrautt teppi úr bútasaum

Salurinn, Hamraborg 6, 200 Kópavogur Kort

lau 31. okt 2026 13:00

Bústaðu viðburðinn!

Vissir þú að tómatsósa bragðast best þegar hún er borðuð í gegnum vettling? Hefurðu upplifað sömu gleði og makríllinn þegar hann heldur út á djúpið? Af hverju eru til svona fá lög um haustið? Og af hverju fjalla þau alltaf um að það sé grátt og dapurlegt? Hvers vegna er haustið búið um leið og við erum farin að venjast því? Er það kannski vegna þess að við höfum ekkert fallegt um það að segja?

Bálrautt teppi úr bútasaum er ný barnaópera eftir tónskáldið Gísla Jóhann Grétarsson og handritshöfundinn og leikstjórann Odu Fiskum og er hluti af Óperudögum 2026.

Sýningin er eins og lífleg söngbók þar sem bútasaumur af forvitni, leikgleði og undrun í texta og tónlist eru saumuð saman með ljóðrænum aríum í bundnu máli og litríkum blekteikningum.

Oda Fiskum og Gísli Jóhann starfa saman í norræna óperuhópnum Operakollektivet. Þetta er þriðja óperan sem þau skapa í sameiningu.

Flytjendur

Hörpuleikari: Katie Buckley

Mezzósópran: Kristín Sveinsdóttir

LISTRÆNT TEYMI

Tónlist: Gísli Jóhann Grétarsson

Librettó og leikstjórn: Oda Fiskum

Leikmunir og myndskreytingar: Håkan Tegnestål

Þýðing: Sólveig Sigurðardóttir

Framleiðandi: Operakollektivet (í samstarfi við Óperudaga á Íslandi)

Frítt er inn og öll hjartanlega velkomin meðan húsrúm leyfir.

Fjölskyldustundir á laugardögum eru notalegar samverustundir, gjarnan smiðjur, sem fara fram í menningarhúsunum í Kópavogi og eru styrktar af menningar- og mannlífsnefnd.