Fílifjónkan sem trúði á hörmungar

Fílifjónkan sem trúði á hörmungar

Tjarnarbíó, Tjarnargata 12, 101 Reykjavík Kort

sun. 22.11.2026 15:00

ISK 5900.00
Miðar / Skráning
ISK 5900.00
Miðar / Skráning

Fílifjónkan sem trúði á hörmungar

Hvað ef besta leiðin til að sigrast á óttanum er einfaldlega að horfast í augu við hann?

Fílifjónkan sem trúði á hörmungar er sjónræn og líkamleg leiksýning fyrir alla fjölskylduna. Falleg saga þar sem tvær óvenjulegar persónur segja á ljóðrænan og bráðskemmtilegan hátt frá sérkennilegri Fílifjónku sem býr ein við afskekkta strönd norðursins. Hún lifir í stöðugum ótta við hamfarir. Eina lifandi veran í nágrenninu er Gaffsan, sem er ekki síður einkennileg.

Sýningin hlaut Ikar, landsverðlaun Búlgaríu fyrir bestu brúðuleiksýningu, í mars 2019. Leikkonurnar Desislava Mincheva og Nedelina Roselinova hlutu jafnframt tilnefningu til Ikar-verðlaunanna fyrir leik sinn.

Byggt á smásögu eftir Tove Jansson.

Handrit og leikstjórn: Petar Todorov

Leikmynd og búningar:Hannah Schwartz

Tónlist: Petya Dimanova

Sviðshreyfingar: Petya Stoykova

Vídjó: Vladislav Iliev

Flytjendur: Desislava Mincheva, Nedelina Roselinova, Izko Finzi (Rödd)