Bestu lög Whitney Houston og Celine Dion
Hof Menningarhús | Hamraborg, Strandgata 12, 600 Akureyri Kort
fös 12. mar 2027 20:00
Whitney Houston og Celine Dion eiga það sameiginlegt að hafa mótað popptónlist samtímans með ótrúlegu raddsviði, tæknilegri fullkomnun og hreinni ástríðu. Lög þeirra hafa snert hjörtu milljónir manna um allan heim og ómað í gegnum áratugi.
Á þessum einstöku tribute tónleikum mun Jónína Björt ásamt gestasöngkonunum Stefaníu Svavars og Guðrúnu Árný stíga á svið og flytja öll stærstu meistaraverkin sem við þekkjum svo vel. I Will Always Love You, I Have Nothing, My Heart Will Go On, The Power of Love, All By Myself eru lög sem munu hljóma ásamt fleiri uppáhaldslögum þessara tveggja stórstjarna.
Kvöld fullt af nostalgíu, gæsahúð og kraftmiklum ballöðum þar sem enginn mun fara ósnortinn út.
Tryggðu þér miða í tíma og upplifðu töfra þessara tveggja goðsagna.
Ásamt Jónínu Björt verður
glæsilegur hópur tónlistarfólks á sviðinu.
Gestasöngkonur: Stefanía Svavars
Guðrún Árný
Hljómsveit:
Eyþór Ingi Jónsson - píanó - tónlistarstjóri
Hallgrímur
Jónas Ómarsson - gítar
Valgarður Óli Ómarsson - trommur
Stefán Gunnarsson -
bassi
Bakraddir: Maja Eir Kristinsdóttir og Guðrún Arngrímsdóttir
Framleiðandi: Rún Viðburðir