Á rauðu ljósi
Samkomuhúsið Akureyri, Hafnarstræti 55, 600 Akureyri Kort
sun. 29.11.2026 20:00
Verið hress, alltaf með stress, bless!
Kristín Þóra Haraldsdóttir mætir norður með geysivinsæla gamansýningu sína sem slegið hefur rækilega í gegn í Þjóðleikhúsinu. Eftir 99 uppseldar sýningar í Kjallaranum var verkið fært á Stóra sviðið – og nú gefst norðanmönnum loksins tækifæri til að sjá herlegheitin!
Á rauðu ljósi er einnar konu sýning þar sem uppistand, einleikur og algjört hispursleysi renna
saman í eitt. Kristín talar á bráðfyndinn og einlægan hátt um stress, streitu, seiglu og þann
eilífa dugnað sem fylgir því að vera manneskja. Kristín Þóra er öllum hnútum kunnug hjá
LA, en hún var áður fastráðin við húsið og hefur síðan þá unnið til fjölda verðlauna fyrir leik
sinn á sviði og skjá
Flytjendur
-
Kristín Þóra Haraldsdóttir
Leikkonan sem stendur fyrir sýningunni Á rauðu ljósi.