Bliss Quintet í Sláturhúsinu

Bliss Quintet í Sláturhúsinu

Sláturhúsið Menningarmiðstöð, Kaupvangur 9, 700 Egilsstaðir Kort

fös. 11.09.2026 20:00

Bliss Quintet kemur fram í Sláturhúsinu föstudaginn 11. september. Síðustu ár hefur hljómsveitin vakið mikla athygli í norskujazzsenunni og hefur íslenska píanóleikarann Benjamín Gísla innanborðs. Í september heldur sveitin í tónleikaferð um Ísland og kemur fram víðs vegar um landið.

Bliss Quintet leggur áherslu á leikandi samskipti, villta orku og frjálsan spuna, í anda norrænna hljómsveita á borð við Atomic og Masqualero. Fyrr á árinu gaf sveitin út sína fjórðu plötu, In Motion, hjá Jazzland Recordings. Þar bætast nýir hljómar, meðal annars hljóðgervlar og flautur, við einkennandi, drífandi og hráan hljóm sveitarinnar. Jafnframt fær kyrrð, endurtekning og sameiginleg leit meira rými en áður.

– „Það leikur enginn vafi á því að Glasshouse býr yfir einstökum og eftirtektarverðum gæðum sem staðfesta stöðu Bliss Quintet í fremstu röð móderna jazzins í Evrópu.“

— Steven James, Jazz in Europe

Hlustaðu á nýjustu plötuna In Motion hér: https://orcd.co/rno4y1x

www.blissquintet.com

Meðlimir:

Oscar Andreas Haug – trompet

Zakarias Meyer Øverli – saxófónn

Benjamín Gísli Einarsson – píanó

Gard Kronborg – bassi

Rino Sivathas – trommur

Tónleikaferð Bliss Quintet er styrkt av Music Norway og Norway Arts Council

Flytjendur