Bliss Quintet í Tónspili
Tónspil, Hafnarbraut 22, 740 Neskaupstaður Kort
lau. 12.09.2026 20:30
Bliss Quintet kemur fram í Tónspili Laugardaginn 12. september.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20:30 og miðaverð er 4.000 kr. Miðar fást við hurð.
Síðustu ár hefur hljómsveitin vakið mikla athygli í norskujazzsenunni og hefur íslenska píanóleikarann Benjamín Gísla innanborðs. Í september heldur sveitin í tónleikaferð um Ísland og kemur fram víðs vegar um landið.
Bliss Quintet leggur áherslu á leikandi samskipti, villta orku og frjálsan spuna, í anda norrænna hljómsveita á borð við Atomic og Masqualero. Fyrr á árinu gaf sveitin út sína fjórðu plötu, In Motion, hjá Jazzland Recordings. Þar bætast nýir hljómar, meðal annars hljóðgervlar og flautur, við einkennandi, drífandi og hráan hljóm sveitarinnar. Jafnframt fær kyrrð, endurtekning og sameiginleg leit meira rými en áður.
– „Það leikur enginn vafi á því að Glasshouse býr yfir einstökum og eftirtektarverðum gæðum sem staðfesta stöðu Bliss Quintet í fremstu röð móderna jazzins í Evrópu.“
— Steven James, Jazz in Europe
Hlustaðu á nýjustu plötuna In Motion hér: https://orcd.co/rno4y1x
www.blissquintet.com
Meðlimir:
Oscar Andreas Haug – trompet
Zakarias Meyer Øverli – saxófónn
Benjamín Gísli Einarsson – píanó
Gard Kronborg – bassi
Rino Sivathas – trommur
Tónleikaferð Bliss Quintet er styrkt av Music Norway og Norway Arts Council.
Flytjendur
-
Bliss Quintet
IS/NO
-
Benjamín Gísli
Einn af fremstu jazz píanóleikurum landsins.