BÓKABÍÓ: PRIDE AND PREJUDICE
Háskólabíó, Hagatorg, 101 Reykjavík Kort
mán. 28.09.2026 19:30
RIFF sýnir Pride and Prejudice!
Bókabíómynd RIFF í ár er Pride and Prejudice, sem fór sigurför um heiminn þegar hún var frumsýnd árið 2005 og nýtur enn mikilla vinsælda. Líkt og skáldsagan sem hún er byggð á hefur kvikmyndin, í leikstjórn Joe Wright, öðlast sess sem tímalaus klassík. Kvikmyndin hlaut fjórar Óskarstilnefningar, þar á meðal Keira Knightley fyrir bestu leikkonu í aðalhlutverki fyrir túlkun sína á Elizabeth Bennet.
Sýningin er haldin í samstarfi við Aðdáendaklúbb Jane Austen á Íslandi og Kristín Linda Jónsdóttir, sálfræðingur og formaður klúbbsins, segir frá Jane Austen: Hvernig stendur á því að verk hennar höfða til fólks enn í dag? Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur og þýðandi Hroka og hleypidóma fjallar um verkið.
Gestum er boðið freyðivín fyrir sýningu. Komdu og skálaðu með okkur fyrir einni bestu ástarsögu allra tíma – og njóttu töfra Pride and Prejudice á hvíta tjaldinu.
Vinsamlegast athugið að samtalið á millu Kristínu og Silju verður á íslensku.
Flytjendur
-
RIFFReykjavík International Film Festival