Bókakviss á Safnahelgi – Hetjur bókmenntanna!
Bókasafn Reykjanesbæjar, Stapasafn, Dalsbraut 11, 260 Njarðvík Kort
fös 16. okt 2026 20:00
Bústaðu viðburðinn!Ertu bessivisser, víðlesinn bókaunnandi eða langar bara í skemmtilegt skemmtikvöld? Þá er þetta kvissið fyrir þig!
Við ætlum að kanna hversu vel þið þekkið fólkið sem hefur lifað, elskað, logið, leyst morðgátur, hefnt sín og tekið misgóðar ákvarðanir á síðum bókmenntanna.
Við förum alla leið frá vígamönnum Íslendingasagnanna yfir í snjalla spæjara, stormasama elskhuga og eftirminnilegar persónur úr nútímabókmenntum.
🧠 Þema: Aðalpersónur bókmenntanna
👯 Tveir saman í liði
📍 Stapasafn
🕗 Kl. 20:00
🏆 Vegleg verðlaun fyrir efstu þrjú liðin í boði KEF spa, Hljómahallar, Brons, GeoSilica og Langbest.
🔥 Bónusspurning í lokin gæti breytt öllu!
Sjáumst á kvissinu!