Bókakvöld - Auður Ava og Tengdasonur Íslands

Bókakvöld - Auður Ava og Tengdasonur Íslands

Salka, Hverfisgata 89, 101 Reykjavík Kort

mið 18. nóv 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

BÓKAKVÖLD MEÐ AUÐI ÖVU

Verið hjartanlega velkomin á bókakvöld í nýju og glæsilegu viðburðarými á neðri hæð bókabúðar Sölku miðvikudaginn 18. nóvember kl. 20. Þá kemur Auður Ava til okkar en hún gaf nýverið út bókina Tengdasonur Íslands sem hefur fengið mjög góðar viðtökur.

Útvarpsmaðurinn góðkunni, Freyr Eyjólfsson, mun leiða samtalið við Auði Övu og það er ljóst að gott kvöld er í vændum. Bókin og aðrar bækur Auðar Övu eru að sjálfsögðu til sölu á staðnum og hiklaust hægt að fá þær áritaðar af höfundi. Bókabarinn er opinn að venju og hægt er að væta kverkarnar á staðnum.

Athugið að ekki er lyfta á neðri hæðina en hægt er að hafa samband við okkur á salka@salka.is og fá aðgengi beint inn á neðri hæðina. Húsið opnar kl. 19.45 og aðgangur er ókeypis.

Við hlökkum til að sjá ykkur!