Átta bókasamverur fyrir almenning á Borgarbókasafninu Grófinni, einn laugardag í mánuði, frá nóvember 2026 til júní 2027.
Hver samvera hefur sjálfstætt þema sem tengist mannlegri reynslu og áskorunum daglegs lífs, svo sem sjálfsmynd, vináttu, breytingum, streitu, gleði og von. Þátttakendur fá tækifæri til að nálgast þessi viðfangsefni í gegnum sameiginlegan lestur, ígrundun, skrif og samtal.
Samverurnar mynda saman heildstætt verkefni, en hver þeirra stendur jafnframt sjálfstætt. Þátttakendur geta því tekið þátt í einni eða fleiri samverum eftir áhuga og þörfum, án þess að fyrri þátttaka eða undirbúningur sé nauðsynlegur.
Lögð verður áhersla á að skapa hlýlegt og öruggt umhverfi þar sem fólk getur nálgast bókmenntir á eigin forsendum, deilt hugleiðingum sínum og kynnst ólíkum sjónarhornum. Þátttaka í persónulegum samtölum verður ávallt valfrjáls.
Verkefnið miðar að því að skapa aðgengilegan vettvang fyrir bókmenntir, samtal og geðrækt og styrkja hlutverk bókasafnsins sem lifandi samfélagsmiðstöð.
Staður: Borgarbókasafnið Grófinni
Tími: 11:15 til 12:45
Dagsetningar:
7. nóvember 2026
5. desember 2026
9. janúar 2027
6. febrúar 2027
6. mars 2027
3. apríl 2027
8. maí 2027
5. júní 2027
Bókasamverurnar eru haldnar í kjölfar vinnustofa og fyrirlesturs sem bókameðferðarsérfræðingurinn Bijal Shah hélt í október 2026 á Borgarbókasafninu.
Bókasamverurnar leiða sérfræðingar Bókmenntaskólans, þær Esther Ágústsdóttir, bókmenntafræðingur og kennari og Elín Bergsdóttir, náms- og starfsráðgjafi, félagsfræðingur og ljóðskáld. Báðar hafa sótt námskeið og fyrirlestra hjá Bijal Shah.
Verkefnið er samstarfsverkefni Bókmenntaskólans og Borgarbókasafns og er styrkt af Bókasafnasjóði.
Frekari upplýsingar veitir:
Þorgerður Agla Magnúsdóttir
Verkefnastjóri | Bókmenntir og lestrarhvatning
thorgerdur.agla.magnusdottir@reykjavik.is | 411 6149
Bókasamvera - Bækur sem uppspretta aukinna lífsgæða
Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort
lau 5. des 2026 11:15
Bústaðu viðburðinn!